Sigrún Þóra Sveinsdóttir
Doktor í taugasálfræði · sérsvið hjartsláttarbreytileiki
Þróaði aðferðina. Mælir og þjálfar hópa og heldur fyrirlestra á vinnustöðum um streitu og streituþol.
Hlutlæg streitumæling og seigluþjálfun fyrir vinnustaði
Við komum á vinnustaðinn í einn dag og mælum viðbrögð starfsfólks við streitu með brjóstbelti. Hver þátttakandi fær sína skýrslu, þið fáið nafnlausa hópmynd og vinnustofu. Svo þjálfum við hópinn og mælum aftur, svo þið sjáið hvort streituþolið jókst.
01Varan
Þetta er það sem þið kaupið fyrst. Einn dagur hjá ykkur, fjórar afhendingar. Allt annað byggir ofan á hann.
Við komum með brjóstbelti og mælum hvern þátttakanda í hvíld og undir stuttu, stöðluðu álagi. Um hálftími á mann, 20 til 25 manns á dag, í kringum ykkar vaktir og fundi.
Hver þátttakandi fær sína skýrslu á mannamáli, fyrst og einn, með ráðleggingum um hvað hann getur gert sjálfur.
Nafnlaus hópmynd til ykkar með túlkun sérfræðings og ráðleggingum fyrir hópinn. Engin einstaklingsgildi, engin nöfn.
Tveggja tíma vinnustofa þar sem hópurinn lærir að lesa eigin niðurstöður og fyrstu öndunaræfingar. Skilafundur með ykkur um næstu skref.
StiginnFjögur tilboð
Tilboðin byggja hvert á öðru en hvert þeirra má kaupa eitt og sér. Verð miðast við fjölda þátttakenda.
60 til 90 mínútur fyrir allt starfsfólk um streitu, streituþol og hvernig líkaminn vinnur.
Mælingin, skýrslurnar tvær og vinnustofan, eins og lýst er hér að ofan.
Sex til átta vikna þjálfun í appi, seinni vinnustofa og endurmæling með fyrir/eftir-skýrslum.
App allt árið, fjórir mælingardagar, uppfærð hópmynd eftir hvern og fyrirlestur árlega.
02Aðferðin
Mælingardagur er byrjun, ekki lok. Hópurinn sér sjálfur hvort þjálfunin skilaði sér, af því að við mælum aftur með sama prótókolli.
Við komum á vinnustaðinn í einn dag. Hver þátttakandi er mældur í hvíld og undir stuttu, stöðluðu álagi með brjóstbelti sem skráir hjartsláttinn með ECG-nákvæmni. Innan við klukkustund á mann, 20 til 25 manns á dag.
Þið fáið einstaklingsskýrslu til hvers þátttakanda, nafnlausa hópskýrslu og vinnustofu.
Vinnustofa á staðnum þar sem hópurinn lærir að lesa eigin niðurstöður. Síðan sex til átta vikur af öndunar- og biofeedback-æfingum í appi með eftirfylgni, og seinni vinnustofa.
Þátttakandi fær daglegar æfingar sem passa við eigin niðurstöðu og sér eigin framvindu.
Sama prótókoll, sami tími dags. Hver þátttakandi sér eigin breytingu frá baseline. Fyrirtækið fær nafnlausa hópmynd af því hvort streituþol hópsins jókst.
Þið fáið fyrir/eftir-hópskýrslu sem kemst fyrir á einni glæru.
Andaðu inn
Öndunaræfing · 5 mín
Dreifing streituþols í hópnum, fyrir og eftir þjálfun. Hver þátttakandi sér sína eigin breytingu; fyrirtækið sér aðeins hópinn.
Hvert skref stendur eitt og sér. Þið getið byrjað á fyrirlestri eða farið beint í mælingardag.
03Hópskýrslan
Hópskýrslan er mynd af hópnum sem stjórnendur geta rætt og starfsfólk getur treyst. Hún er kynnt hópnum sjálfum fyrst, svo afhent tengilið sem PDF.
04Traust
Þetta er ekki smáatriði. Það er ástæðan fyrir því að starfsfólk tekur þátt.
Sínar eigin niðurstöður, fyrst og einn. Getur hætt hvenær sem er, líka í miðri mælingu, og látið eyða gögnunum sínum.
Nafnlausa hópmynd, aldrei fyrir færri en fimm manns. Engin nöfn, engar einstaklingstölur, enginn listi yfir hverjir tóku þátt.
Við seljum ekki gögn og afhendum þau engum. Gögnin eru geymd innan Evrópska efnahagssvæðisins og þátttakandi getur fengið afrit af öllu sem við geymum um hann.
„Niðurstöður eru aldrei notaðar í starfsmannamálum. Það stendur í samningnum.“
05Vísindin
Hjartsláttarbreytileiki, HRV, er breytileikinn í tímanum milli hjartslaga. Hann er viðurkenndur mælikvarði á hvernig ósjálfráða taugakerfið bregst við álagi og hvílist.
Brjóstbelti skráir hjartsláttinn sjálfan. Tíminn milli slaga er mældur í millisekúndum.
Hvíld, stutt staðlað álag, hvíld eftir álag. Sömu aðstæður fyrir allan hópinn og sami tími dags við endurmælingu.
Niðurstöður eru reiknaðar með skráðum formúlum úr HRV og sérfræðingur túlkar þær í samhengi. Hver þátttakandi er borinn saman við eigið baseline, ekki við aðra.
Aðferðin er þróuð af doktor í taugasálfræði með sérsvið í hjartsláttarbreytileika og hefur verið prófuð með hópum.
06Um okkur
Íslenskt fyrirtæki. Við mætum á vinnustaðinn, tölum við fólkið og skiljum vinnustaðinn.
Doktor í taugasálfræði · sérsvið hjartsláttarbreytileiki
Þróaði aðferðina. Mælir og þjálfar hópa og heldur fyrirlestra á vinnustöðum um streitu og streituþol.
Verkfræðingur · hugbúnaður og rekstur
Byggir appið og gagnakerfið. Sér um rekstur og persónuvernd, og að farið sé með gögn þátttakenda eins og við lofum.
07Spurningar
Heiðarleg svör. Þar sem svarið er „við vitum það ekki enn“ segjum við það.
Nei. Þú sérð þínar niðurstöður, fyrst og ein. Fyrirtækið fær nafnlausa hópmynd og aldrei fyrir færri en fimm manns, svo ekki er hægt að reikna út einstaklinga. Við afhendum aldrei einstaklingsgögn til vinnuveitanda, sama hvað er beðið um, og það stendur í samningnum. Þú getur hætt hvenær sem er og látið eyða gögnunum þínum.
Hjartsláttarbreytileiki er viðurkenndur mælikvarði á virkni ósjálfráða taugakerfisins og hefur verið rannsakaður í áratugi. Við notum ECG-brjóstbelti og staðlað prótókoll sem er eins fyrir alla. Aðferðin er hönnuð af doktor í taugasálfræði með sérsvið í HRV. Það sem við höfum ekki enn er birt rannsókn á okkar eigin prótókolli; við höfum prófað hann með hópum og erum með áætlun um sannprófun. Við segjum ekki meira en við getum staðið við.
Mælingin tekur um hálftíma á mann og við komum til ykkar. Vinnustofan er tvær klukkustundir. Heimaþjálfun í prógrammi er nokkrar mínútur á dag og fólk ræður hvenær. Við skipuleggjum mælingardag í kringum ykkar vaktir eða fundi.
Nei. Þjónustan er fyrir vellíðan, seiglu og streituþol. Við greinum ekki, meðhöndlum ekki og komum ekki í veg fyrir sjúkdóma, og við gefum engin klínísk viðmiðunarmörk. Brjóstbeltið sem við notum er neytendavara. Ef þátttakandi þarf heilbrigðisþjónustu vísum við á hana; við erum ekki hún.
Hópmyndin er staða, ekki dómur. Ef hún sýnir mikið álag í hópi þá vitið þið það núna, á meðan hægt er að gera eitthvað. Þá er prógrammið og endurmælingin leiðin til að sýna stjórn og starfsfólki að þið brugðust við og hvað gerðist. Við förum yfir niðurstöðuna með ykkur áður en hún fer lengra, og hópskýrslan fer aldrei út úr húsi frá okkur.
Einstaklingsskýrslan er skrifuð á mannamáli og sérfræðingur fer yfir hana með hverjum sem vill. Við segjum aldrei að einhver sé veikur; við segjum hvernig líkaminn brást við í mælingunni og hvað hægt er að gera. Ef einhver er í vanlíðan sem er utan okkar sviðs vísum við á heilsugæslu eða 1717, og höfum skrifað ferli fyrir það.
Rétt, við erum lítið fyrirtæki. Aðferðin er skjalfest skref fyrir skref svo annar sérfræðingur geti afhent hana, og við erum að byggja upp þjálfun fyrir fleiri. Ef mælingardagur þarf að færast, færum við hann; gögnin ykkar og skýrslur eru óháð einni manneskju.
Já. Fyrirlesturinn stendur einn og sér og er oft góð byrjun. Ef áhugi vaknar í hópnum er mælingardagur næsta skref, en það er ekki skilyrði.
08Fyrir einstaklinga
Mæling, viðtal við sérfræðing og prógramm sem sýnir þér breytinguna. Við stefnum á að opna aðstöðu fyrir einstaklinga á seinni hluta 2027. Skráðu þig á áhugalista og þú heyrir fyrst.
09Hafa samband
Sigrún heldur 60 til 90 mínútna fyrirlestur fyrir starfsfólkið ykkar um streitu, streituþol og hvernig líkaminn vinnur. Í lokin sýnum við hvernig mælingardagur gengur fyrir sig. Þið ráðið hvort þið haldið áfram.
Við tökum þrjá vinnustaði inn á sérkjörum gegn endurmælingu og nafnlausri dæmisögu.
Eða skrifið beint: info@waveresilience.com